Textareitur

Hlaupahópur FH - Æfingar 3x í viku!
Frá Kaplakrika á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 og á laugardögum frá Suðurbæjarlaug kl.9:00 fyrir alla hópa.
Allir eru velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Ný heimasíða hlaupahópsins í loftið - www.hhfh.is

08. desember 2010 klukkan 17:25
Undanfarið hafa Steinn og Helgi unnið að uppsetningu á nýrri heimasíðu fyrir hlaupahópinn. Er hún núna komin í loftið og er slóðin www.hhfh.is

Þessi síða verður ekki notuð meira og eru félagar hvattir til að skoða nýju síðuna sem er mjög flott.

Hlaup sem eru framundan

06. desember 2010 klukkan 19:53
Næstkomandi fimmtudag fer fram þriðja Poweradehlaup vetrarins. Í síðasta hlaupi kepptu 16 manns úr hlaupahópnum og vonandi verða þeir fleiri í þetta skiptið.

Þann 12. des. stendur Hafnarfjarðarbær fyrir Kaldárhlaupinu - Víðavangshlaup 10km.   Hlaupaleiðin er farvegur Hamarskotslækjar. Hlaupið hefst kl. 13:00 og ætti að vera góð æfing fyrir alla í hópnum. Allar upplýsingar um hlaupið má nálgast inn á www.hlaup.is en þar fer jafnframt fram skráning.

Góð mæting hefur verið undanfarið og hátt í 80 manns eru að mæta á þriðjudögum, rúmlega 50 á fimmtudögum og svo rúmlega 30 á laugardögum. Það sem er ánægjulegt er að flestir sem missa af æfingum á laugardögum hreyfa sig í staðinn á sunnudögum og það er greinilegt að áhuginn og metnaðurinn er mikill hjá félagsmönnum. Eru félagar hvattir til að skrá sig inn á hlaupadagbókina (www.hlaup.com) en í dag eru rúmlega 80 manns skráðir, sumir þó misvirkir. Að halda æfingadagbók veitir gott aðhald og það er alltaf gaman að geta skoðað aftur í tímann hvernig maður hefur æft.

Í lokin vilja þjálfarar hvetja alla félagsmenn til að vera vel merktir endurskini á æfingum.

Sjáumst á æfingu á þriðjudag,
komaso

Æfingar og fleira

29. nóvember 2010 klukkan 13:37
Æfingar hafa gengið vel undanfarið og er ótrúlegt að sjá framfarirnar sem hópurinn hefur sýnt í haust. Stöðugt fjölgar í hópnum og eru nýir félagar að bætast við vikulega. Í dag telur hópurinn rúmlega 110 virka félaga og er hópurinn án efa einn af þeim stærstu hér á landi. Hvetja þjálfarar sem flesta til að skrá sig inn á www.hlaup.com til að halda utan um æfingar. Annan fimmtudag fer fram Poweradehlaup nr. 3 og í síðasta hlaupi kepptu 16 félagar úr hópnum og vonandi verða þeir fleiri í næsta hlaupi.

Áheitahlaupið heppnaðist vel og er stefnt að því að afhenda afraksturinn næstkomandi fimmtudag. Munum við hlaupa saman til Mæðrastyrksnefndar í Hafnarfirði og afhenda afraksturinn. Eru félagar hvattir til að vera í FH-jökkunum. Stefnum við að því að taka mynd af okkar glæsilega hópi.  Áheit á að leggja inn á reikning 0327-26-9036, kt. 681189-1229 og senda afrit millifærslu á hronnb@setbergsskoli.is 

Í janúar mun hefjast hlaupasería FH og Atlantsolíu og verður boðið upp á 5km hlaup síðasta fimmtudag í hverjum mánuði en hlaupin verða þrjú. Hlaupin hefjast fyrir utan höfðuðstöðvar Atlantsolíu í Hafnarfirði kl. 19:00. Vona þjálfarar að félagar í  hlaupahópnum fjölmenni og taki þátt. Nánari upplýsingar um hlaupin verða komin inn á hlaup.is í desember. Þátttökugjaldi verður stillt í hóf en glæsileg verðlaun veitt fyrir samanlagðan árangur í hlaupaseríunni.

Sjáumst á þriðjudag á æfingu en þá eru m.a. brekkusprettir í Setbergi á dagskrá.
komaso
Þjálfarar

Vel heppnað áheitahlaup

22. nóvember 2010 klukkan 22:22
Áheitahlaupið heppnaðist mjög vel síðastliðinn laugardag. Mætingin var með eindæmum góð og mikill hugur í félögum hópsins að styrkja gott málefni. Þegar félagar hafa safnað áheitum saman er hægt að leggja inn á   reikning 0327-26-9036, kt. 681189-1229 og senda afrit millifærslu á hronnb@setbergsskoli.is
Stefnt er að því að afhenda afraksturinn þriðjudaginn (30. nóv) eftir viku. Eru allir hvattir til að mæta í FH-jökkunum þá þannig að hægt sé að mynda allan hópinn saman.

Ný æfingaáætlun er kominn á vefinn og stefnum við á að fara á Víðistaðatún á morgun og hlaupa létta spretti.

sjáumst á æfingu
komaso

Muna að vera vel merktur endurskini á hlaupum

17. nóvember 2010 klukkan 17:17
Í dag var frétt í fjölmiðlum þar sem lögregla áminnir hlaupara fyrir að vera illa merktir í umferðinni. 
Sjá  nánar inn á vef www.mbl.is

Þjálfarar hvetja alla í hlaupahóp FH til að vera vel merktir endurskini á æfingum og ennfremur að virða umferðareglur.Smile

Þeir sem vilja kaupa endurskinsvesti geta keypt þau hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur, félaga okkar í hópnum, og kosta þau kr. 1850- en hún er einnig með endurskinsbelti sem kosta kr. 712. Guðrún er alltaf með vesti og belti á æfingum og geta félagar mátað hjá henni. Einnig geta félagar keypt Craft endurskinsvesti í Afreksvörum í Glæsibæ of fáum við 20% aflsátt af vestunum.


Í gær náði nýliðahópurinn þeim árangri að hlaupa 5km samfleytt og er það frábær árangur eftir 8vikna æfingar. Óska þjálfarar þeim til hamingju með að hafa náð settu markmiði og eflaust verða margir í hópnum farnir að hlaupa fljótlega 10km.

Svo má ekki gleyma áheitahlaupinu næsta laugardag - safna krónum fyrir gott málefni.

komaso 

Áheitahlaup næstkomandi laugardag

15. nóvember 2010 klukkan 09:36

Næstkomandi laugardag, 20. nóvember, stefna félagar í hlaupahópnum að hlaupa áheitahlaup þar sem hver félagi safnar áheitum fyrir hvern kílómeter sem hann/hún hleypur á æfingu. Ágóði hlaupsins mun renna til Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar.
Vona þjálfarar að félagar taki þessu vel og safni áheitum fyrir góðu málefni.
Smelltu hér til að ná í eyðublað sem nota má til að safna áheitum.

Sextán manns úr hlaupahópnum tóku þátt í Poweradehlaupinu síðastliðinn fimmtudag og stóðu þeir sig með ágætum. Hæst ber árangur Maríu Kristínar sem náði 3ja sæti í kvennaflokki  Haraldar Tómasar sem varð nr. 4 í karlaflokki. Margir voru að hlaupa á persónulegu meti á hlaupaleiðinni þrátt fyrri kulda og rok.
Annars var árangurinn eftirfarandi:

Röð     Tími     Nafn                          Félag/klúbbur 
4.      37:30    Haraldur Tómas Hallgrímsson   Hlaupahópur FH
13.     38:48    Friðleifur Friðleifsson       Hlaupahópur FH
28.     40:46    María Kristín Gröndal         Hlaupahópur FH
34.     41:26    Björn Traustason              Hlaupahópur FH
73.     44:20    Gunnar Stefánsson             Hlaupahópur FH
77.     44:42    Bóas Jónsson                  Hlaupahópur FH
82.     45:04    Hjördís Ýr Ólafsdóttir        Hlaupahópur FH
153.    49:01    Valgeir P                     Þrí SH/Hlaupahópur FH
159.    49:20    Jón Sigþór Jónsson            Þrí SH/Hlaupahópur FH
166.    49:32    Helga Halldórsdóttir          Hlaupahópur FH
179.    50:16    Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir   Hlaupahópur FH
192.    50:59    Kristín Högnadóttir           Hlaupahópur FH
204.    51:37    Karl Garðarsson               Hlaupahópur FH
241.    53:56    Corinna-Hoffmann              Hlaupahópur FH
273.    56:04    Linda Björk Loftsdóttir       Hlaupahópur FH
302.    58:59    Ingibjörg Sigþórsdóttir       Hlaupahópur FH

Nýliðahópurinn mun hlaupa 5km næstkomandi fimmtudag þar sem við ákváðum að fresta því síðasta laugardag. Stefnum við á að hlaupa vegalengdina á brautinni.

sjáumst á æfingu á þriðjudag,
komaso

 

Ýmsar hagnýtar upplýsingar

31. október 2010 klukkan 21:17

Æfingar hafa gengið vel undanfarið og hefur mætingin farið fram úr björtustu vonum. Síðastliðinn þriðjudag mættu 80 manns á æfingu og greinilegt að orðspor hópsins hefur farið víða og er það ánægjulegt fyrir þjálfara og félaga í hópnum. Fjölmargir sýna ótrúlegar framfarir og er virkilega gaman að sjá hversu vel fólk er að mæta á æfingar og taka á því.
Þjálfarar vilja minna alla á að teygja vel á eftir æfingar og vera vel búnir. Góðar teygjur eru nauðsynlegar eftir æfingar. Eru félagar hvattir til að vera vel sýnilegir í skammdeginu sem er framundan - verið í endurskinsvestum eða með endurskinsborða á göllum. Hægt er að kaupa endurskinsvesti hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur, félaga okkar í hópnum, og kosta þau kr. 1850- en hún er einnig með endurskinsbelti sem kosta kr. 712. Guðrún er alltaf með vesti og belti á æfingum og geta félagar mátað hjá henni.

Hlaupajakkar fyrir þá sem pöntuðu verða afhentir næstkomandi fimmtudag. Verð er kr. 12.500- með merkingu. Til að fá jakka afhentan verða félagar að greiða jakkann fyrirfram og má greiða inn á reikning 0327-26-9036 kt. 681189-1229, skýring greiðslu er hlaupajakki / Hlaupahópur FH og afrit millifærslu á að senda í tölvupósti á steinn.johannsson@gmail.com
Afreksvörur í Glæsibæ bjóða næstu vikur 20% afslátt af New Balance skóm og Craft íþróttafatnaði. Félagar þurfa að taka fram fyrir greiðslu að þeir séu í hlaupahóp FH til að fá afsláttinn en listi ætti að liggja hjá Afreksvörum.
Við vonum einnig að félagar taki greiðsluseðlunum vel vegna æfingagjalda.
Sjáumst hress á næstu æfingu - komaso
Þjálfarar

Coach

Frábær árangur í haustþoninu

23. október 2010 klukkan 18:52
Í dag, laugardaginn 23 október, kepptu fjölmargir úr hlaupahópnum í haustþoni Félags maraþonshlaupara og er óhætt að segja að árangurinn hafi verið frábær. Nær allir voru að bæta tíma sína og eru þjálfarar hópsins ákaflega stoltir af öllum þeim sem tóku þátt. Laughing


Árangurinn var annars eftirfarandi:
Maraþon
Haraldur Tómas Hallgrímsson         02:56:02
Guðmundur Þorleifsson                  03:38:28
Örn Hrafnkelsson                          03:42:55

Hálft maraþon
Björn Margeirsson                          01:10:37
Friðleifur Friðleifsson                      01:23:16
Bóas Jónsson                                01:34:04
Karl Garðarsson                             01:50:44
Sveinbjörn Sigurðsson                    01:51:47
Ólafur St. Arnarsson                       01:52:12
Gísli Ágúst Guðmundsson                01:52:13
Jón Friðgeir Þórisson                       01:52:22
Þorbjörg Ósk Pétursdóttir                01:56:21
Brynja Björg Bragadóttir                  01:56:55
Kristín Högnadóttir                         01:58:58
Finnur Sveinsson                           02:01:10
Christina Finke                              02:01:15

Við óskum öllum innilega til hamingju með árangurinn.
Fræðslufundurinn heppnaðist mjög vel síðastliðinn miðvikudag og mættu rúmlega 60 manns á fundinn. Næstkomandi þriðjudag verður boðið upp á mátun á liðsjökkum og í framhaldinu verða pantaðir jakkar.

Við vonumst til að sjá sem flesta á æfingu á þriðjudag,
komaso

Fræðslufundur og æfingar

17. október 2010 klukkan 21:14
Við viljum minna félaga á fræðslufundinn sem verður haldinn næstkomandi miðvikudag kl. 20:00 í fyrirlestrarsalnum í íþróttahúsi Setbergsskóla.
Efni fundarins er eftirfarandi:
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur heldur fyrirlestur
Markmið og keppnir næsta árs erlendis
Starfið sem er framundan

Mátun verður á liðsjökkum fyrir þá sem vilja panta en verðið á jakka er kr. 12.500-

Þjálfarar vona að félagar fjölmenni á fundinn sem og æfingar í vikunni.

Um næstu helgi fer fram haustmaraþonið og verður hlaupið í Elliðaárdal og út á Ægissíðu. Tveir félagar munu hlaupa heilt maraþon og nokkur fjöldi hálft maraþon.
Óskum við þeim góðs gengis í hlaupinu.

komaso
Þjálfarar

Æfingar og það sem er á döfinni

10. október 2010 klukkan 22:35

Ný æfingaáætlun er komin á vefinn. Í næstu viku hefst Powerade hlaupaserían og munu eflaust margir í hópnum taka þátt en hlaupin eru alls sex í vetur. Einnig styttist í haustþonið sem fer fram eftir tvær vikur.

Fræðslufundurinn hefur verið settur á þann 20. október en því miður urðum við að fresta honum um viku. Eins og áður hefur komið fram er umræðuefnið næring á æfingum og í hlaupum, mögulegar keppnir erlendis næsta haust fyrir hópinn og hvernig setur maður sér markmið fyrir komandi hlaupaár.
Við þjálfarar vonum að félagar fjölmenni á fundinn.

Einnig geta þeir sem ekki eiga FH-jakka mátað jakka eftir fundinn. Er hugmyndin að panta jakka strax í vikunni eftir fræðslufundinn.

Mjög góð mæting hefur verið á æfingar undanfarið og eru núna rúmlega 100 manns skráðir í hlaupahópinn. Greiðsluseðlar ættu að berast til félaga eftir helgi og eru þeir sem ekki fá seðil vinsamlega beðnir um að láta þjálfara vita. Gjaldið er kr. 12.000- á ári og er tvískipt til sex mánaða.
Vonum við þjálfarar að félagar taki greiðsluseðlunum vel SmileEf einhverjir eiga eftir að skrá sig í hópinn eru þeir beðnir um að senda kennitölu, nafn og netfang á steinn.johannsson@gmail.com

Sjáumst á æfingu á þriðjudag.

Margmenni á æfingum og mikill áhugi

03. október 2010 klukkan 19:33
Undanfarið hefur mætingin í hlaupahópinn verið mjög góð og á þriðjðudag og fimmtudag mættu hátt í 70 manns á æfingu. Er virkilega gaman að sjá áhugann hjá nýliðunum í hópnum og fara þeir vel af stað. Framundan er fræðslufundur fyrir félaga í hópnum og hefur hann verið settur á 14. október í fyrirlestrarsalnum í íþróttahúsi Setbergsskóla.  Er áætlað að fundurinn hefjist kl. 20:00 og verður umræðuefnið næring á æfingum og í hlaupum, mögulegar keppnir erlendis næsta haust fyrir hópinn og markmiðssetning fyrir komandi hlaupaár. Vonum við að félagar fjölmenni á fundinn.
Einnig geta þeir sem ekki eiga FH-jakka mátað jakka eftir fundinn. Er hugmyndin að panta jakka strax í vikunni eftir fræðslufundinn.

Sjáumst á æfingu á þriðjudag
komaso
Coach

Tilboð í Fjölsporti til Hlaupahóps FH

30. september 2010 klukkan 14:33
Fjölsport verður með kynningu á nýju Asics skónum næsta fimmmtudag til laugardags. Á laugardaginn milli 14 - 17 verður sérfræðingur frá Asics að leiðbeina fólki um val á skóm. Jafnframt verðum við með 20 % afsláttt þessa daga af hlaupaskóm þ.e.öllum hlaupaskóm og 20 % afslátt af hlaupafatnaði.

Fjölsport mun reyna að vera með gott úrval fyrir hlaupara og býður verslunin t.d. yfir 20 gerðir/týpur af skóm fyrir karla, konur og born og verðin á Asics eru oft betri en gengur og gerist .

 

Klukkan

Könnun

Ég hef áhuga á að keppa erlendis á næsta ári með hlaupahópnum, t.d. í 10km, hálfu eða heilu maraþoni: